07.08.2011 21:04Hekla frá EyjarhólumFékk senda þessa mynd í dag af þriggja mánaða gamalli Klængsdóttur, Heklu frá Eyjarhólum. Eigendurnir eru svo ánægðir með útkomuna að móðirin fór aftur undir Klæng í sumar. Stórglæsilegt merfolald! Það væri gaman að fá sendar fleiri myndir af Klængs afkvæmum :) Skrifað af Sedda 02.08.2011 12:37SónarskoðunKlængsdóttir fædd í sumar á Eyjarhólum Það verður sónarskoðað hjá Klæng þriðjudaginn 16. ágúst kl. 10 og geta merareigendur búist við að heyra frá umsjónarmönnum Klængs eftir það. Þeim sem ætla að mæta í seinna gangmál er bent á að þeir mega fara að koma með merarnar þó það sé ekki búið að sónarskoða úr fyrra gangmáli. Skrifað af Sedda 25.07.2011 16:26Ragnarök från GalgbackenFékk senda mynd af Klængsdóttur sem er köstuð 2008. Þetta er stórglæsileg hryssa og verður gaman að fylgjast með henni. Hún heitir Ragnarök från Galgbacken og er undan Bendingu frá Sperðli (Nagladóttir frá Þúfu). Ragnarök er staðsett í Svíþjóð. Alltaf gaman að fá sendar myndir af afkvæmum Klængs :) Skrifað af Sedda 06.07.2011 16:55Klængur á LandsmótiVar að fá þessar myndir sendar af Ragnari Þorra og Klæng, teknar á Landsmótinu. Flottir saman þeir félagar :) Skrifað af Sedda 06.07.2011 16:50Kraftur frá MiðkotiKraftur frá Miðkoti er stóðhestur undan Klæng sem fór í dóm í sumar. Hér eru nokkrar myndir af honum. ![]() ![]() ![]() Frekari upplýsingar um Kraft er hægt að fá hér. Skrifað af Sedda 04.07.2011 12:52FréttirÞað er helst í fréttum að Klængur og Ragnar Þorri lentu í 6. sæti í unglingaflokki á landsmótinu sem var að ljúka, með einkunnina 8,47.
Við óskum þeim félögum til hamingju með flottan árangur!
Nú er komið að því að Klængur fer að sinna öðrum sumarstörfum og er merareigendum sem eiga pláss undir hestinn bent á að koma með merarnar á miðvikudag, 6. júlí, eftir kl. 17 á Strandarhöfði. Klængur verður svo settur í girðinguna 7.-8. júlí. Girðingargjald verður að þessu sinni 20.000 kr m/vsk og er innifalið í því ein sónarskoðun.
Ég held að það séu enn einhver pláss laus þannig að fyrir þá sem hafa áhuga þá er um að gera að hafa samband við Vigni í síma 894-3106 eða Magga Ben í síma 893-3600. Ég rakst svo á þetta myndband á netinu af Ófeigi Klængssyni, fæddur 2008 undan Gjósku frá Miðengi. Hann er svo sannarlega léttur í spori þessi :)
Skrifað af Sedda 19.06.2011 22:07LandsmótÁkveðið hefur verið að fara með Klæng á landsmót. Ragnar Þorri Vignisson, 14 ára, lenti í þriðja sæti á Klæng í unglingaflokki á úrtöku þann 11. júní síðastliðinn og fékk einkunnina 8,27. Glæsilegur árangur hjá þeim félögum :) Ég fæ vonandi senda mynd fljótlega frá úrtökunni og get þá sett hana inn á heimasíðuna. Þetta þýðir að Klængur fer í girðingu 7.-8. júlí og þurfa merareigendur þar af leiðandi að mæta með merar sínar 5. júlí. Skrifað af Sedda 11.06.2011 12:33Afkvæmi Klængs í dómTvö af afkvæmum Klængs mæta í dóm þetta sumarið, Kraftur frá Miðkoti og Tíbrá frá Hemlu.
IS2007184621
Litur: 3400 jarpur/rauð-einlitt
Tíbrá frá Hemlu IS2007280610
Litur: 2200 Brúnn/mó-einlitt
![]()
2008 fæddust fleiri Klængsafkvæmi en 2007 og það munu öruglega einhver fara í dóm næsta sumar, það verður spennandi að sjá hvernig þau munu standa sig. Við óskum eigendum Krafts og Tíbráar til hamingju með flotta og jafna dóma á myndarlegum klárhrossum!
Skrifað af Sedda 18.05.2011 18:59FolaldafréttirNú er sá tími ársins að merarnar eru farnar að kasta, og eitthvað af Klængsbörnunum láta sjá sig:) Hér er mynd sem ég fékk senda frá Sindra og Dóru á Eyjarhólum og er þetta rauð meri köstuð í morgun, undan Klæng og Foldu frá Eyjarhólum. Það væri gaman að fá myndir af fleiri Klængsafkvæmum, hægt er að senda þær á sigruneh@gmail.com :) Skrifað af Sedda 27.04.2011 21:46Notkun 2011Verð á folatollum er 80.000 kr m/vsk fyrir utan girðingargjald og sónar. Klængur verður í Hemlu í húsmáli, en í Strandarhjáleigu í fyrra og seinna gangmáli. Ef áhugi er fyrir að panta pláss fyrir meri þá er um að gera að hafa samband við umsjónarmann hestsins, sem er Vignir Siggeirsson, í síma 894 3106, eða við Magga Ben, í síma 893 6300. Einnig vil ég benda hluthöfum á uppfærða töflu yfir hvaða gangmál þeir fá undir Notkun 2011. Skrifað af Sedda 01.04.2011 01:39Aðalfundur og tryppa/folaldasýningFimmtudaginn 14. apríl kl. 19:00 fer fram aðalfundur Klængsfélagsins í Rangárhöllinni að Hellu. Hefst aðalfundurinn á folalda og tryppasýningu undan hestinum. Þeir sem hafa tök á því að koma með afkvæmi á sýninguna er bent á að hafa samband við Guðmund í Skálakoti (info@skalakot.is) eða Magga Ben (maggiben@gmail.com) Vonumst til að sjá sem flesta. Stjórnin Skrifað af Sedda 25.10.2010 17:17Myndband af KlængFékk sendann link á þetta flotta myndband af Klæng frá Skálakoti. Upptakan var gerð á FM07 og er virkilega flott :)
Skrifað af Sedda 14.09.2010 09:04Sónar hjá KlængKæru félagar,
Sónað verður út hjá Klæng fimmtudaginn 16.09 kl 14.00 um er að
ræða síðustu sónarskoðun, og eru menn því hvattir til að nálgast
hryssur sínar að Feti samdægurs.
Nánari uppl. veita: Maggi s: 8933600 Vignir s: 8943106 Mummi s: 8664891
Stjórnin-- Kveðja, Skrifað af Sedda 11.09.2010 20:33Folaldamyndir![]() Kvika frá Borgarfirði, undan Klæng frá Skálakoti og Kengálu frá Fögrubrekku Það væri voða gaman að fá að sjá fleiri myndir af Klængsafkvæmum sem komu í sumar, þau voru væntanlega þónokkur :) Skrifað af Sedda 03.08.2010 17:15Myndarlegur KlængssonurFékk þessa mynd senda í dag frá Lovísu á Hemlu af myndarlegum, rauðum Klængssyni. Merin sem snáðinn er undan heitir Skrugga frá Hafnarfirði Alltaf gaman að fá myndir af folöldum til að setja á heimasíðuna, vonandi á næstu árum verður svo hægt að setja hér inn myndir af þessum sömu hrossum í reið Skrifað af Sedda |
Vafraðu umVerð á folatolli undir Klæng frá Skálakoti, sumarið 2011, er 80.000 kr m/vsk. Frekari upplýsingar Tenglar |
||||||||