Flokkur: Fundargerðir

04.12.2009 13:22

Aðalfundur 1. desember 2009

Eftirfarandi er fundargerð aðalfundsins sem haldinn var þriðjudaginn 1. desember 2009

Um klukkan hálf níu að kvöldi 1. desembers 2009 ver settur fundur í Rangárhöllinni hjá Klængsfélaginu.  Fámennt en góðmennt var á fundinum.
Árið var í heild sína ágætt, Klængur gerði það gott og sigraði klárhestaflokkinn í Pétursey með 8,68.  
58 hryssur komu undir klárinn, af þeim voru 47 sónaðar og var fyljunarhlutfall hjá þeim 91% (4 reyndust tómar).  Af þeim 10 plássum sem eiga að standa undir félagið seldust 4.
Upp kom umræða um verð á folatollum og ákveðið var að endurskoða verðið í ljósi árferði þess sem er nú, og mun stjórnin taka það að sér að ákveða verð, sem verður svo auglýst næsta vor.
Kosið var um einn nýjann stjórnarmeðlim, og var Rúnar Þór Guðbrandsson kosinn í stað Ársæls Hafsteinssonar í stjórn.
Kostnaður af því að halda klárinn og sinna allri þeirri vinnu sem tengist að fá merar til hans var meiri en haldið var og mun stjórnin gera Vigni og Lovísu á Hemlu tilboð í næsta rekstrarár.
Þar sem ákveðið var á stofnfundi í nóvember í fyrra að loka skyldi hverju reikningsári fyrir sig, og eftir árið standa einhverjar skuldir, munu vera sendir út gíróseðlar til hluthafa á næstu dögum, upphæðin er ekki há sem þarf að innheimta en dugar fyrir þeim kostnaði sem eftir er fyrir árið 2009.
Ekki er búið að tryggja klárinn en farið verður í það fljótlega.
Fyrstu tryppin undan Klæng eru nú í tamningu og lofa góðu og er geðslagið einstaklega gott.  Spennandi verður að sjá hvernig rætist úr þeim.  Meðal annars eru tveir geldingar úr eigu Guðmundar í tamningu í Mosfellsbæ og gengur mjög vel með þá.
Rætt var um Landsmót og er stefnt á að komast í A-úrslit klárhesta.  Stjórn var falið að ákveða í hvaða félagi Klængur mun keppa.
Sem stendur er Klængur úti á túni við Skálakot og hefur það gott, en verður sjálfsagt tekinn inn um miðjan desember.
Vignir Siggeirsson sýndi áhuga á að mæta með Klæng á einhver mót á komandi tímabili, og mun hann sjálfur ákveða hvaða mót þetta munu verða.  Þau verða svo væntanlega auglýst á heimasíðu Klængs (http://klaengur.123.is) til að gefa hluthöfum og öðrum áhugasömum tækifæri á að sjá hann.
Ýmislegt annað var rætt og fundi var svo slitið um 10.

Fundargerð skrifuð af Ásrúnu E. Magnúsdóttur og Sigrúnu E. Halldórsdóttur

15.09.2008 12:00

Fundargerð stofnfundar Ræktunarfélagsins Klængs

Eftirfarandi er fundargerð stofnfundsins sem haldinn var föstudaginn 12. september 2008

Um klukkan sjö að kvöldi 12 sept.2008 fór fólk sem boðað hafði verið á stofnfund rækunarfélags um stóðhestinn Klæng IS2001184159 að koma að Skálakoti undir Eyjafjöllum.  Þangað hafði verið komið nokkrum hryssum með folöldum undan klárnum sem og Klæng sjálfum, fólk labbaði um reiðhöllina og skoðaði tryppin, lagði síðan Vignir Siggeirsson á hestin og sýndi. Um hálf átta var síðan kvöldmatur sem Lovísa í Hemlu og Rakel á Fornusöndum sáu um með stakri príði.

Var síðan gengið til fundar. Bauð Guðmundur Viðarsson fólk velkomið og lýsti í fáum orðum aðdragandanum að stofnun félagsskaparins sem og las upp hluthafaskrá,en hún telur 60 hluti. Þakkaði hann fólki fyrir hve auðvelt það hafi verið að selja klárinn og gat þess að það væru þrír á biðlista ef einhverjir hættu við. Dreifði Guðmundur síðan tillögu af samþykktum félagsins og lýsti og gaf síðan orðið laust. Varð töluverð umræð um samþykktirnar og þeim lítilega breitt en þær síðan samþykktar samhljóða.

Guðmundur stakk uppá Ársæli Hafsteinssyni Forsæti, Magnúsi Benediktssyni Fornusöndum og sjálfum sér í stjórn og voru þeir kjórnir með lófaklappi sem og varastjórn en hana skipa Jón í Miðhjáleigu, Hermann Árnason Hvolsvelli og Lovísa í Hemlu.

Skoðunarmaður reikninga var kosinn Þröstur Ólafsson Sperðli en til vara Sveinbjörn Sveinbjörnsson Kópavogi.

Var þá komið að liðnum önnur mál vakti Guðmundur atygli á því að einn hluthafa Sigrún Edda væri nú þegar búinn að gera heimasíðu Klængs á slóðinni http://www.123.is/klaengur og þakkaði Sigrúnu framtakið sem og Magnúsi Benediktssyni fyrir gerð eigendabréfa sem afhent voru fyrr á fundinum. Var síðan ýmislegt skrafað fram eftir kvöldi en fundi var slitið um kl. 10.

 

 

Skrifað eftir minni að morgni 13 sept.

 

                                                 Guðmundur Viðarsson.
  • 1

Vafraðu um

IS2001184159

Nafn:

Klængur frá Skálakoti
Verð á folatolli undir Klæng frá Skálakoti, sumarið 2012, er 80.000 kr +vsk.
Frekari upplýsingar

Tenglar

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 77293
Samtals gestir: 21555
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:30:19
Útlit hannað af Seddu