12.04.2012 11:48

Fundargerð

Eftirfarandi er fundargerð aðalfundar Klængsfélagsins 2012.

Guðmundur Viðarsson bauð gesti fundarins velkomna og tilnefndi sjálfan sig sem fundarstjóra (samþykkt samhljóða).

Guðmundur flutti skýrslu stjórnar, en hún er eftirfarandi:

Húsgangmál 2011 að Hemlu var langt, þar sem Ragnar Þorri keppti á Klæng í unglingaflokki á Landsmótinu og hlaut þar í einkunn 8.47.

Klængur var síðan eitt langt gangmál í girðingu á Strandarhöfuð, Landeyjum og var þar í umsjón Auðar Möller. Hún hefur jafnframt lýst yfir áhuga að taka að sér umsjón með hestinum á komandi sumri.

Hekla Katarína Kristinsdóttir óskaði eftir því að fá Klæng að láni síðastliðið haust til að vera með í námi hennar við reiðkennarabraut Hólaskóla. Gengið hefur vel með hestinn og m.a. tekið þátt í einni töltkeppni sem hún vann. Hefur hún sýnt áhuga að fá að vera með hann fram að Landsmóti með það að markmiði að keppa þar á honum. Hún myndi þá sjá um húsmálið í Árbæjarhjáleigu.

Lagðir voru fram reikningar fyrir síðasta starfsár og voru þeir samþykktir.

Tveir stjórnarmenn óskuðu eftir því að láta af störfum en það eru Rúnar Þór Guðbrandsson og Magnús Benediktsson. Í stað þeirra koma inn Sigurlaugur Gíslason (gjaldkeri) og Jón Þorberg Steindórsson (ritari). Áfram í stjórn eru Guðmundur Viðarsson (formaður) og Lovísa Herborg Ragnarsdóttir (varamaður).

Undir liðnum önnur mál kom fyrirspurn um fyljun á síðasta ári og kom fram að hún hefði verið góð seinnipart sumars.

Borin var upp beiðni Heklu Katarínu um að hafa hestinn fram að Landsmóti og var hún samþykkt af öllum fundarmönnum.

Verð á folatolli fyrir árið 2012 var ákveðið 80.000 + vsk

Samþykkt var að leita til að Auðar Möller um að hafa umsjón með gangmáli eftir Landsmót.

Fundi slitið.

Hér er svo video sem tekið var af afkvæmum hans í gær á fundinum.

01.04.2012 14:22

Ilmur frá Fornusöndum

Var að fá sendar myndir af Ilm frá Fornusöndum, en það er merin sem skoraði hæst í byggingarmatinu í Andvara fyrr á árinu :)  Ilmur verður 4 vetra í sumar, falleg og vel þroskuð meri.
Glæsileg meri og verður spennandi að fylgjast með henni.







22.03.2012 18:18

Aðalfundur

Góðan daginn, 

Miðvikudaginn 11. apríl kl. 19:00 fer fram aðalfundur Klængsfélagsins í Rangárhöllinni að Hellu.

Hefst fundurinn á sýningu afkvæma. Þeir sem hafa áhuga á því að sýna hross í reið undan klárnum er bent á að hafa samband við Guðmund í Skálakoti (info@skalakot.is) eða Magga Ben (maggiben@gmail.com)

Hefðbundin aðalfundarstörf.

Kaffiveitingar verða á staðnum gegn mjög vægu gjaldi.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórnin

Guðmundur, Magnús og Rúnar

07.08.2011 21:04

Hekla frá Eyjarhólum

Fékk senda þessa mynd í dag af þriggja mánaða gamalli Klængsdóttur, Heklu frá Eyjarhólum.
Eigendurnir eru svo ánægðir með útkomuna að móðirin fór aftur undir Klæng í sumar.



Stórglæsilegt merfolald!
Það væri gaman að fá sendar fleiri myndir af Klængs afkvæmum :)

02.08.2011 12:37

Sónarskoðun


Klængsdóttir fædd í sumar á Eyjarhólum

Það verður sónarskoðað hjá Klæng þriðjudaginn 16. ágúst kl. 10 og geta merareigendur búist við að heyra frá umsjónarmönnum Klængs eftir það.

Þeim sem ætla að mæta í seinna gangmál er bent á að þeir mega fara að koma með merarnar þó það sé ekki búið að sónarskoða úr fyrra gangmáli.

25.07.2011 16:26

Ragnarök från Galgbacken

Fékk senda mynd af Klængsdóttur sem er köstuð 2008.  Þetta er stórglæsileg hryssa og verður gaman að fylgjast með henni.

Hún heitir Ragnarök från Galgbacken og er undan Bendingu frá Sperðli (Nagladóttir frá Þúfu).  Ragnarök er staðsett í Svíþjóð.



Alltaf gaman að fá sendar myndir af afkvæmum Klængs :)

06.07.2011 16:55

Klængur á Landsmóti

Var að fá þessar myndir sendar af Ragnari Þorra og Klæng, teknar á Landsmótinu.





Flottir saman þeir félagar :)

06.07.2011 16:50

Kraftur frá Miðkoti

Kraftur frá Miðkoti er stóðhestur undan Klæng sem fór í dóm í sumar.  Hér eru nokkrar myndir af honum.




Frekari upplýsingar um Kraft er hægt að fá hér.

04.07.2011 12:52

Fréttir

Það er helst í fréttum að Klængur og Ragnar Þorri lentu í 6. sæti í unglingaflokki á landsmótinu sem var að ljúka, með einkunnina 8,47.
Við óskum þeim félögum til hamingju með flottan árangur!

Nú er komið að því að Klængur fer að sinna öðrum sumarstörfum og er merareigendum sem eiga pláss undir hestinn bent á að koma með merarnar á miðvikudag, 6. júlí, eftir kl. 17 á Strandarhöfði.  Klængur verður svo settur í girðinguna 7.-8. júlí.
Girðingargjald verður að þessu sinni 20.000 kr m/vsk og er innifalið í því ein sónarskoðun.

Ég held að það séu enn einhver pláss laus þannig að fyrir þá sem hafa áhuga þá er um að gera að hafa samband við Vigni í síma 894-3106 eða Magga Ben í síma 893-3600.

Ég rakst svo á þetta myndband á netinu af Ófeigi Klængssyni, fæddur 2008 undan Gjósku frá Miðengi.  Hann er svo sannarlega léttur í spori þessi :)


19.06.2011 22:07

Landsmót

Ákveðið hefur verið að fara með Klæng á landsmót.  Ragnar Þorri Vignisson, 14 ára, lenti í þriðja sæti á Klæng í unglingaflokki á úrtöku þann 11. júní síðastliðinn og fékk einkunnina 8,27.  Glæsilegur árangur hjá þeim félögum :)

Ég fæ vonandi senda mynd fljótlega frá úrtökunni og get þá sett hana inn á heimasíðuna.

Þetta þýðir að Klængur fer í girðingu 7.-8. júlí og þurfa merareigendur þar af leiðandi að mæta með merar sínar 5. júlí.

11.06.2011 12:33

Afkvæmi Klængs í dóm

Tvö af afkvæmum Klængs mæta í dóm þetta sumarið, Kraftur frá Miðkoti og Tíbrá frá Hemlu.  

IS2007184621
Litur: 3400 jarpur/rauð-einlitt


 Sköpulag: 8,04
Höfuð: 8,0
Háls/herðar/bógar: 8,0       
Bak og lend: 7,5
Samræmi: 8,0
Fótagerð: 8,5
Réttleiki: 7,5
Hófar: 8,0
Prúðleiki: 9,0
Hæfileikar: 7,63
Tölt: 8,5
Brokk: 8,0
Skeið: 5,0
Stökk: 8,5
Vilji og geðslag: 8,0
Fegurð í reið: 8,0
Fet: 7,5
Hægt tölt: 8,0
Hægt stökk: 8,5
Aðaleinkunn: 7,79   

Tíbrá frá Hemlu
IS2007280610
Litur: 2200 Brúnn/mó-einlitt


 Sköpulag: 7,94
Höfuð: 8,0
Háls/herðar/bógar: 8,0       
Bak og lend: 8,0
Samræmi: 8,0
Fótagerð: 8,0
Réttleiki: 7,5
Hófar: 8,0
Prúðleiki: 7,5
Hæfileikar: 7,47
Tölt: 8,0
Brokk: 8,0
Skeið: 5,0
Stökk: 8,0
Vilji og geðslag: 8,0
Fegurð í reið: 8,0
Fet: 7,5
Hægt tölt: 7,5
Hægt stökk: 8,0
Aðaleinkunn: 7,66   

2008 fæddust fleiri Klængsafkvæmi en 2007 og það munu öruglega einhver fara í dóm næsta sumar, það verður spennandi að sjá hvernig þau munu standa sig.  Við óskum eigendum Krafts og Tíbráar til hamingju með flotta og jafna dóma á myndarlegum klárhrossum!

18.05.2011 18:59

Folaldafréttir

Nú er sá tími ársins að merarnar eru farnar að kasta, og eitthvað af Klængsbörnunum láta sjá sig:)

Hér er mynd sem ég fékk senda frá Sindra og Dóru á Eyjarhólum og er þetta rauð meri köstuð í morgun, undan Klæng og Foldu frá Eyjarhólum.



Það væri gaman að fá myndir af fleiri Klængsafkvæmum, hægt er að senda þær á sigruneh@gmail.com :)

27.04.2011 21:46

Notkun 2011



Verð á folatollum er 80.000 kr m/vsk fyrir utan girðingargjald og sónar.

Klængur verður í Hemlu í húsmáli, en í Strandarhjáleigu í fyrra og seinna gangmáli.

Ef áhugi er fyrir að panta pláss fyrir meri þá er um að gera að hafa samband við umsjónarmann hestsins, sem er Vignir Siggeirsson, í síma 894 3106, eða við Magga Ben, í síma 893 6300.

Einnig vil ég benda hluthöfum á uppfærða töflu yfir hvaða gangmál þeir fá undir Notkun 2011.

01.04.2011 01:39

Aðalfundur og tryppa/folaldasýning

Fimmtudaginn 14. apríl kl. 19:00 fer fram aðalfundur Klængsfélagsins í Rangárhöllinni að Hellu.

Hefst aðalfundurinn á folalda og tryppasýningu undan hestinum. Þeir sem hafa tök á því að koma með afkvæmi á sýninguna er bent á að hafa samband við Guðmund í Skálakoti (info@skalakot.is) eða Magga Ben (maggiben@gmail.com)

Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórnin

25.10.2010 17:17

Myndband af Klæng

Fékk sendann link á þetta flotta myndband af Klæng frá Skálakoti.  Upptakan var gerð á FM07 og er virkilega flott :)

Vafraðu um

IS2001184159

Nafn:

Klængur frá Skálakoti
Verð á folatolli undir Klæng frá Skálakoti, sumarið 2012, er 80.000 kr +vsk.
Frekari upplýsingar

Tenglar

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 77293
Samtals gestir: 21555
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:30:19
Útlit hannað af Seddu