07.06.2009 20:49

Geysismót

Hestamannafélagið Geysir hélt gæðingamót um helgina og tók Vignir Siggeirsson þátt á Klæng frá Skálakoti í B-flokki gæðinga, og höfnuðu þeir þar í fimmta sæti.  Eldjárn frá Tjaldhólum varð í fyrsta sæti í B-flokki og sigraði Stormur frá Leirulæk A-flokkinn.

Ef einhver á myndir af Klæng frá mótinu þá væru þær vel þegnar á e-mail sigruneh@gmail.com

1-10 sæti af 34
Sæti
 Hross Knapi Aðildafélag eiganda Einkunn
 1. Eldjárn frá Tjaldhólum Guðmundur Björgvinsson Geysir 8,67
 2. Vígar frá Skarði Rakel Natalie Kristinsdóttir Geysir 8,61
 3. Gróska frá Dalbæ Sigurður Sigurðarson Geysir 8,57
 4. Rósant frá Votmúla 1 Artemisia Bertus Andvari 8,52
 5. Klængur frá Skálakoti Vignir Siggeirsson Geysir 8,49
 6. Korkur frá Þúfum
 Artemisia Bertus
 Léttfeti
 8,48
 7. Mídas frá Kaldbak
 Steingrímur Sigurðsson
 Gustur
 8,46
 8.
 Jónína frá Feti
 Anton Níelsson
 Geysir
 8,45
 9.
 Fókus frá Sólheimum
 Fanney Guðrún Valsdóttir
 Fákur
 8,45
 10.
 Tryggvi Geir frá Steinnesi
 Artemisia Bertus
 Neisti
 8,35

30.05.2009 15:28

Fundurinn í gær

Góð mæting var á fundinn og þótt veður væri ekki hið besta, sýndi Vignir Klæng úti á vellinum við Rangárhöllina og var Klængur hinn glæsilegasti að vanda, á meðan sýningunni stóð skalf jörðin en hesturinn kippti sér ekkert upp við það.  Jarðskjálfti (4,7 að stærð) sem átti upptök við Grindavík hitti svona akkurat á meðan Vignir var á baki.
Þegar sýningunni á Klæng var lokið, fengu allir sér pulsur og ræddu málin. 
Allavega eitt folald er fætt undan Klæng og er það jörp meri.  Nokkrar merar eru nú þegar búnar að heimsækja Klæng og enn fleiri væntanlegar, það verður gaman að sjá öll afkvæmin næsta sumar.
Því miður voru engar myndavélar á staðnum.

29.05.2009 11:04

Fundur í kvöld!



Minni á fundinn í kvöld.  Við munum hittast við reiðhöllina á Hellu klukkan 20:30 og verður grillað þar.  Ef veður leyfir verður Klængur sýndur utandyra, en annars inni í höllinni.

Allir eru velkomnir og um að gera að kíkja við ef forvitni er um hestinn!  Hluthafar eru kvattir til að bjóða með sér gestum.

Ég vil einnig minna þá á sem voru búnir að hafa samband í vetur og vildu fá pláss undir Klæng, að hafa samband og staðfesta.  Nú þegar er búið að nýta eitthvað af þeim aukaplássum sem eru seld undir hestinn í sumar, og nokkur pöntuð.
Hægt er að hafa samband við Guðmund í síma 866-4891 eða 487-8953

Vafraðu um

IS2001184159

Nafn:

Klængur frá Skálakoti
Verð á folatolli undir Klæng frá Skálakoti, sumarið 2012, er 80.000 kr +vsk.
Frekari upplýsingar

Tenglar

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 77293
Samtals gestir: 21555
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:30:19
Útlit hannað af Seddu